|
Homopata lyfið Hepar Sulph. er rosalega gott við síendurtekina eyrnabólgu. E-vítamin dregur úr framgangi sjúkdómsins PRA. Homopata lyfið Fragaria mykir tannsteina og auðveldar hreinsun tanna, eða jafn vel eyðir tannsteina ef það er ekki orðið of mikið. Fragaria er unnið úr jarðaberjum. Sagt er að sterk blanda af Camomille tei sé þjóðráð til að þvo augnsvæðið og að losna þannig við tára bletti í kringum augnsvæðið.
Vissir þú að eðlilegur líkamshiti hunda er 38 -38,5°C
Hitinn lækkar um heila gráðu eða fer niður í <37°C rétt fyrir got. Meðganga hjá tík er 59-63 dagar eða uþb. 9 vikur að setja hrísgrjón í sokk, binda fyrir og hita í örbylgju ofni í ca 2-3 mín er fínn hitapoki í hvolpakassann
Að strjúka yfir tennur daglega með vetnisperoxide blandað 1/9 með vatni hjálpar við að halda tönnunum hvítum og minnkar tannsteina.
Tannrót í Shih Tzu hundum er mjög stutt, þess vegna missa þeir tennurnar oft snemma. Gott er að nudda góminn um leið og þrifið er með tannhreinsiklút þá styrkist tannholdið.
Te er allrameinabót fyrir hunda og ef þeir hafa fengið í magann, eða eru slappir er gott gefa þeim te með smá mjólk og örlitlum sykri, yfirleitt þykir þeim það gott og drekka það án vandræða.
Hundar svitna í gegnum þófana.
Allir hundar eru í sama blóðflokki, þannig að ef gefa þarf hundi blóð má nota blóð úr hvaða hundi sem er en betra er að það sé stór hundur.
Kalkmyndun í beinum hvolpafósturs verður þegar tíkin er uþb. hálfnuð á meðgöngunni.
Ef litarefni vantar í hvolp er oft gott að gefa honum þara, það kallar litarefni fram ef það er á annað borð til staðar.
Betra er að byrja að venja unga hvolpa við fast fæði frá 10-14 daga aldri, ef þeir byrja að borða síðar verða þeir voðalega oft matvandir. Ef dýrin væru villt, þá myndi kvendýrið æla og hvolpanir lepja hana, til er sérstakur grautur fyrir unga hvolpa sem líkir eftir þessu og hefur reynst mjög vel.
Þefskyn Shih Tzu hunda er ekki eins gott og í öðrum hundategundum en þeir heyra þeim mun betur en aðrir hundar.
|